15.1.2008 | 13:29
Veiðiskýrslur
Var að skila veiðiskýrslu síðasta árs, verð að skila skýrslu þó ég veiði ekki neitt.
Verð alltaf fúll yfir því misrétti sem skotveiðimenn eru beittir einir manna að borga
rannsóknir á sinni veiðibráð. Við borgum líka rannsóknir á refum og minkum þó
það verði seint taldar sportveiðar. Hversvegna borga stangveiðimenn ekki veiðikort svo
þeir megi renna fyrir fisk? Ég geri mér fulla grein fyrir þörf á rannsóknum á þessu sviði
og þörf okkar á sem réttustu upplýsingum um stofnstærðir. þetta er spurnin um hvort
ekki skuli jafnt yfir alla ganga. Að lokum vil ég leggja til að veiðar álft verði leifðar í ljósi
mikillar fjölgunar á þeim stofni og þeim skaða sem þær geta og valda í ræktunarlöndum
bænda.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.